Nykur og feitur hestur

Rétt áðan vorum við í Nykri að ganga frá skráningu í Bókatíðindi 2008. Það væru ekki tíðindi til næsta bæjar nema fyrir þá staðreynd að útgáfulínan er óvenju glæsileg og heillandi.

Fimm ljóðabækur og ein kennslubók. Hvorki meira né minna. Maður gæti orðað fréttina sem svo að Nykur ætlaði að ríða feitum hesti frá bókajólunum. En það gæti orkað tvímælis.

Hér er svolítill listi yfir bækurnar sex:

Uppsveifla/Niðursveifla eftir Þorgerði Mattíu Kristiansen

- fyrsta ljóðabók höfundar sem hefur skrifað ljóð á ljóð.is svo árum skiptir

Refur eftir Emil Hjörvar Petersen

- önnur ljóðabók Emils, en frumraun hans, Gárungagap, vakti nokkra athygli í fyrra

Vermsl eftir Hrafn Andrés Harðarson

- sjöunda ljóðabók Hrafns Andrésar og við bjóðum hann velkominn í hópinn

Þórðarbókin - ljóðasafn Þórðar Helgasonar

- fjórar gamlar ljóðabækur og ein glæný í fallegri stórbók meistarans

Ljóð.is - hundrað íslensk samtímaljóð

- safnbók af ljóðavefnum www.ljod.is - hundrað ljóð eftir hundrað skáld

Tvískinna eftir Davíð A. Stefánsson

- hugvekja og kennslubók um mátt tungumálsins og neyslumenninguna

Fyrr en varir verður haldið heljarinnar útgáfupartý til að fagna þessum glæsilegu bókum. Meiri og fyllri upplýsingar um bækurnar berast innan tíðar.

Nýr vefur Nykurs

Jæja, loksins er að fæðast nýr vefur fyrir Nykur. Guðný Þorsteinsdóttir svaraði kallinu á Facebook og hefur séð um að smíða vefinn upp úr WordPress. Við erum ekki með neina stæla, vefurinn er einfaldur upplýsingavefur.

Allar ábendingar vel þegnar.

Davíð

30.09.2008 Óflokkað Comments Off